Besti síldarrétturinn

Svala Júlía Ólafsdóttir og Ólafur S. Guðmundsson
Svala Júlía Ólafsdóttir og Ólafur S. Guðmundsson

Rauðka og Síldarævintýrið á Siglufirði efndu til uppskriftasamkeppni um besta síldarréttinn á Síldarævintýrinu 2016. Sérstök dómnefnd valdi besta síldarréttinn og var síldarsalatið hennar Svölu Júlíu Ólafsdóttur valið það besta. Verðlaunin voru ekki af verri endanum gisting á Hótel Sigló.

Óskum við Svölu Júlíu innilega til hamingju með vinninginn.

Rússneskt síldarsalat

  • Soðnar kartöflur (stappaðar)
  • Soðin egg (skorin)
  • Grænar baunir
  • Niðursoðnar gulrætur (saxaðar)
  • Súrar gúrkur, heilar stórar í krukku (saxaðar smátt)
  • Marinerurð síld (skorin smátt)
  • Sýrður rjómi, majones, salt

Vinningsuppskriftina er einnig að finna á vefsíðu Síldarævintýrisins.