Berjadagar tónlistarhátíð verður haldin 3.-6. ágúst 2023

Berjadagar tónlistarhátíð verður haldin 3.-6. ágúst nk.
 
Berjadagar er fjölskylduvæn þriggja til fjögurra daga tónlistarhátíð sem fram fer um Verslunarmannahelgi ár hvert í Ólafsfirði.  Á Berjadögum tónlistarhátíð koma fram ólíkir hljóðfæraleikarar til að flytja list sína í kynngimögnuðum tónlistarsölum sem gera upplifun af klassískum tónleikum einstaka.
 
Fram koma; Björg Brjánsdóttir þverflauta, Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari, Helga Þórarinsdóttir víóluleikari og fyrirlesari, Ármann Helgason klarínett, Einar Bjartur Egilsson píanó, strengjasveitin Íslenskir strengir, Ave Kara Sillaots harmónikka og margir fleiri.
 
Frumflutt verða íslensk verk og kammermúsík frá ýmsum löndum verður í forgrunni!
 
Búið ykkur undir spennandi helgi með fjölbreyttum tónleikum um Verslunarmannahelgi!
 
Á meðal viðburða verður listsýning utan dyra og tónlistarviðburður í Litlusveit, við sumarbústað listakvennanna Margrétar Jónsdóttur og Helgu Pálínu Brynjólfsdóttur, en hann er staðsettur rétt norðan við Þóroddsstaðatjörn, 5 km frá bænum, milli Auðna og Þóroddsstaða vestan megin í firðinum.
 
 
 
Hátíðin er styrkt af Bæjarsjóði Fjallabyggðar, Menningarsjóði FÍH, SSNE/Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystri og fleirum.