Berjadagar 2015

Nú styttist í síðustu hátíð sumarsins í Fjallabyggð en listahátíðin Berjadagar hefst á fimmtudaginn, 13. ágúst. Listahátíðin Berjadagar 2015 verður í grunninn með öðru sniði en vanalega því lokakvöldið er að þessu sinni leikhússsýning Guðmundar Ólafssonar þar sem nýtt verk hans lítur dagsins ljós í fyrsta skipti í Ólafsfirði, verkið Annar tenór – en samt sá sami. Það verða því glæsilegir tónleikar í kirkjunni fimmtudags- og föstudagskvöld að venju og síðan leikhússýning Guðmundar laugardagskvöld og á sunnudag. Hátíðin stendur því yfir fjóra daga. Stjórnendur hátíðarinnar líta á frumsýningu Annars tenórs í firðinum sem kærkomna tilbreytingu í tilefni 70 ára kaupstaðarréttinda Ólafsfjarðar. Enda átti forveri verksins, Tenórinn, fádæma vinsældum að fagna af íslensku leikverki að vera og hér ríður Guðmundur á vaðið með nýtt verk sem hefur ekki verið sýnt áður í Ólafsfirði.
Auk þessa​ tónleika og leikhúss​ munu ljósmyndir Brynjólfs Sveinssonar vera sýnilegar í Tjarnarborg. En þar er af nógu að taka og dætur hans standa fyrir því að fleiri myndir líti dagsins ljós.

Dagskráin er eftirfarandi:
Fimmtudagskvöld í kirkjunni kl. 20:00
Íslensk ljóð og blandaðar aríur. Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, sópran og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó leika fjölbreytta dagskrá.
Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópran flytur ásamt Helgu Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara fjölbreytta dagskrá á opnunartónleikum Berjadaga 2015. Þar hljóma íslensk ljóð eftir Sigfús Halldórsson, Tryggva M. Baldvinsson og Sigvalda Kaldalóns.
Hanna syngur einnig erlendar ljóðaperlur eftir E. Grieg og færir​ sig yfir í söngleiki Jerome Kern og Meredith Willson þegar líður á kvöldið. Hanna Þóra Guðbrandsdóttir er nýkomin frá Noregi þar sem hún söng Gerhilde í óperunni Die Walküre Eftir R. Wagner í Norsku óperunni.

Föstudagskvöld í kirkjunni kl. 20:00
Í Ólafsfjarðarkirkju kynnir hópurinn Mógil einstakan hljóðheim sinn og leika m.a. nýjar tónsmíðar af glóðvolgri plötu sem er væntanleg á markað nú í ágúst.
Meðlimir: Heiða Árnadóttir söngur, Kristín Þóra Haraldsdóttir víóla, Hilmar Jensson rafgítar, Eiríkur Orri Ólafsson trompet og Joachim Badenhorst klarinett. Mógil vefur einstakan hljóð vef í tónsmíðum sínum. Þar getur að heyra áhrif frá klassík, þjóðlagatónlist, og djassi. Textarnir eru mikilvægir í lögum þeirra og nokkur ljóð eru eftir söngvara hópsins Heiðu Árnadóttur en þau syngja einnig við ljóð Vilborgar Dagbjartsdóttur, Hannesar Péturssonar og Árna Ísakssonar. Þau hafa ferðast víða um heim og leikið á hátíðum einsog heimstónlistarhátíðinni WOMEX og nú geta áheyrendur notið þeirra í notalegu kirkjunni í Ólafsfirði þar sem þau flytja sín lög en einnig þekkt íslensk.

Laugardagskvöld í Menningarhúsinu Tjarnarborg kl. 20:00
Leikverkið Annar Tenór – en samt sá sami?
Leikarar: Guðmundur Ólafsson, Aðalbjörg Árnadóttir og Sigursveinn Magnússon
Leikstjóri: María Sigurðardóttir
Höfundur leikverks: Guðmundur Ólafsson
Leikverkið er framhald af hinu vinsæla leikverki Guðmundar sem fór á fjalir Iðnó árið 2003 og fór vítt um land við mikinn fögnuð. Leikverkið Annar tenór gerist 11 árum síðar þar sem tenórinn ,,frægi” og undirleikarinn geðprúði hittast aftur fyrir tilviljun og taka tal saman. Raunveruleikinn blasir við og í leikritinu afhjúpast raunir aðalpersónunnar á eftirminnilegan hátt en m.a. fyrir tilstuðlan stórskemmtilegri þriðju persónu sem leikin er af Aðalbjörgu Árnadóttur. Hér eins og þá syngur Guðmundur sig inní hjörtu áheyrenda með völdum söngperlum við undirleik Sigursveins.

Dvalarheimili aldraðra Hornbrekka – Ljósmyndasýning föstudagur kl. 15:00
Kaffihúsastemning með Guðmundi Ólafssyni, Sigrúnu Valgerði Gestsdóttir og Sigursveini Magnússyni. Slegið á létta strengi og drukkið kaffi!

Menningarhúsið Tjarnarborg – Ljósmyndasýning laugardag kl. 14:00 - 18:00 og sunnudag kl. 13:00 - 15:00
Í tilefni af kaupstaðarafmæli Ólafsfjarðar verður ljósmyndum Brynjólfs Sveinssonar varpað á vegg. Brynjólfur fæddist árið 1914 og tók myndir til dauðadags árið 1981. Ljósmyndir hans lýsa daglegu lífi í Ólafsfirði og safn hans geymir stórmerkilega heimild menningarsögu i firðinum.
Allir velkomnir!

Þeir sem kaupa sér aðgang á alla viðburði Berjadaga kaupa sig inná tvenna tónleika í kirkjunni og eina leikhússýningu með músíkölsku ívafi.
Aðgangseyrir​ tónleikar​: 2.500 kr.
​Leikhús: 3.000 kr.
​Hátíðarpassi: 6.500 kr.
Frítt fyrir 15 ára og yngri
Miðar við inngang​inn ​og midi.is

Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar.