Bæjarskrifstofur lokaðar fimmtudag og föstudag

Vegna flutninga verða Bæjarskrifstofur Fjallabyggðar lokaðar fimmtudaginn 22. maí og föstudaginn 23. maí.  Frá og með mánudeginum 26. maí verða 
starfsmenn með aðalaðsetur á 3ju hæð í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Siglufirði.
Opnunartími verður frá kl. 09:30 - 15:00 alla virka daga.

Á annarri hæð að Ólafsvegi 4, Ólafsfirði verður regluleg viðvera starfsmanna fram að breytingum á því húsnæði og síðan í tengslum við opnun bókasafns- og upplýsingamiðstöðvar.