Bæjarlistamaður 2011 heiðraður

Örlygur Kristfinnsson (mynd: Sigurður Ægisson)
Örlygur Kristfinnsson (mynd: Sigurður Ægisson)
Í tilefni þess að Menningarnefnd hefur valið Örlyg Kristfinnsson myndlistarmann, hönnuð og rithöfund bæjarlistamann Fjallabyggðar 2011, mun sérstök viðhöfn fara fram 25. febrúar kl. 17.00 í Ráðhúsinu þar sem bæjarlistamaður verður heiðraður.

Markmiðið með því að tilnefna bæjarlistamann ár hvert er að hvetja og auka áhuga á listsköpun og bæta menningarlíf íbúa. Um leið er það viðurkenning bæjaryfirvalda að sköpun og list skipti samfélagið máli. Slík nafnbót er jafnframt auglýsing á listamanninum og sveitarfélaginu. Styrkur til bæjarlistamanns 2011 nemur kr. 150.000.

Fræðslu- og menningarfulltrúi