Sandra Finssdóttir og Örlygur Kristfinnsson
Síðastliðinn föstudag útnefndi menningarnefnd, Örlyg Kristfinnsson Bæjarlistamann Fjallabyggðar 2011. Sandra Finnsdóttir formaður nefndarinnar fór yfir það ötula starf sem Örlygur hefur tekið að sér í Fjallabyggð sem safnstjóri, rithöfundur, myndlistarmaður, hönnuður, kvæðamaður og lífskúnstner. Þetta er í annað sinn sem valinn er Bæjarlistamaður Fjallabyggðar og tekur Örlygur við nafnbótinni af Bergþóri Morthens sem bar titilinn árið 2010.
Fjallabyggð óskar Örlygi innilega til hamingju með nafnbótina.