Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2016

Fríða Gylfa, bæjarlistamaður 2015
Fríða Gylfa, bæjarlistamaður 2015

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar auglýsir eftir umsóknum og/eða rökstuddum ábendingum um bæjarlistamann Fjallabyggðar 2016. Nafnbótin bæjarlistamaður getur hlotnast einstökum listamanni eða hópi. Styrkur til bæjarlistamanns 2016 nemur kr. 150.000 til einstaklings og kr. 250.000 til hóps. Umsóknir eða ábendingar skulu berast til sveitarfélagsins fyrir 18. desember 2015, með bréfi eða í tölvupósti á netfang markaðs- og menningarfulltrúa; kristinn@fjallabyggd.is  Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns má finna á heimasíðu Fjallabyggðar.

Markaðs– og menningarnefnd.