Aukaúthlutun menningarráðs Eyþings

Menningarráð Eyþings auglýsir til umsóknar verkefnastyrki til menningarstarfs á Norðausturlandi Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli  samnings menntamála- og iðnaðarráðuneytis við Eyþing frá 27. apríl 2007. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Norðausturlandi.

Menningarráðið leggur jafnan áherslu á að þau verkefni sem hljóta styrki efli á einhvern hátt samstarf og/eða samvinnu í menningarmálum á Norðausturlandi eða dragi fram menningarleg sérkenni svæðisins.  Auk þessa hefur ráðið ákveðið að árið 2009 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

  • Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðarlaga eða listgreina. Sérstaklega  er horft til verkefna sem  eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja saman Norðausturland
  • Verkefni sem  stuðla að samvinnu atvinnumanna í  listum og leikmanna.
  • Verkefni sem hvetja til samvinnu ólíkra þjóðarbrota í samstarfi við Íslendinga. Verkefnin geta tengst tónlist, danslist, myndlist, bókmenntum og fl.
  • Verkefni sem efla þekkingu og fræðslu á sviði  menningar og lista.
  • Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista.
Umsóknarfrestur er til og með 18. september.  Úthlutun fer fram í október.

Hámarksstyrkur í aukaúthlutun er 400.000.- Verkefni sem fá úthlutað í aukaúthlutun  þurfa að fara fram á tímabilinu október 2009 - janúar 2010.

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings www.eything.is eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu  29, 3. hæð.  

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur menningarráðs á heimasíðu Eyþings www.eything.is 

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is

Menningarráð Eyþings auglýsir viðveru menningarfulltrúa í sveitarfélögum í Eyþingi vegna aukaúthlutunar á menningarstyrkjum 2009. Viðtalstímar menningarfulltrúa verða sem hér segir:

Ólafsfjörður       15. september kl. 11.30 -12.30 Bæjarskrifstofunni á Ólafsfirði

Siglufjörður        15. september kl. 14-15 Bæjarskrifstofunni á Siglufirði

Viðtalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi.