Fiskistofa hefur auglýst eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa í Fjallabyggð. Umsóknarfrestur er til 6. apríl.
Auglýsing Fiskistofu er svohljóðandi:
"Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2009/2010 sbr. reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa
nr. 82, 29. janúar 2010.
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 231/2010 í Stjórnartíðindum
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög:
Stykkishólmsbær
Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður)
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (www.fiskistofa.is), og þar eru ofangreindur reglur einnig aðgengilegar. Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2010.
Fiskistofa, 20. mars 2010."