Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir Fjallabyggð skv. ákvæðum reglugerðar nr. 685/2018 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2018/2019.
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr.auglýsingu nr. 141/2019 í Stjórnartíðindum
Umsóknarfrestur fyrir neðangreind byggðarlög er til og með 25. febrúar 2019
- Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður)
Umsóknargátt fyrir byggðakvóta
Eyðublað fyrir samning við vinnslu
Leiðbeiningar:
Sækja skal um byggðakvóta í gegnum gáttina hér að ofan. Til þess að opna umsóknareyðublaðið þarf að nota kennitölu og íslykil útgerðarinnar. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um.
Samningur um vinnslu afla skal vera undirritaður og staðfestur af sveitarfélagi.
Senda skal vinnslusamninginn á byggdakvoti@fiskistofa.is
Umsækjendur eiga þá að fá sjáflvirka svarsendingu með staðfestingu á móttöku vinnslusamningsins.
Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi. Samningum þarf að skila áður en umsóknarfrestur er liðinn.
Nánari upplýsingar
Umsókn er skilað í gegnum rafrænu umsóknargáttina. Vinnslusamningi skal skila í tölvupósti á byggdakvoti@fiskistofa.is
Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2019