Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2012/2013

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 628/2012 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2012/2013

Vesturbyggð (Patreksfjörður)

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 1045/2012í Stjórnartíðindum

Sveitarfélagið Garður

Vesturbyggð (Brjánslækur og Bíldudalur)

Blönduósbær

Fjallabyggð (Siglufjörður og Ólafsfjörður)

Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaðisem er að finna hér.  Umsóknum þarf að fylgja samningur við vinnslu á eyðublaði sem er að finna hér

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.

Umsóknarfrestur er til og með 21. desember 2012.

Fiskistofa 7. desember 2012