Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 685 frá 5. júlí 2018 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2018/2019 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:
a) Ákvæði a-liðar 1. gr. breytist og verður: Hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, við lok umsóknarfrests og eru undir 1.000 brúttótonn að stærð.
b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2017 til 31. ágúst 2018, þó að hámarki 70.000 þorskígildiskíló á bát.
c) Ákvæði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Afli af fiskiskipum sem landað er í sveitarfélagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi sveitarfélags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
d) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2018 til 31. ágúst 2019.
e) Við ákvæði 1. mgr. 6. gr. bætist: Heimil eru skipti á fiski í jöfnum þorskígildum milli fiskvinnslna.
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt eru felldar úr gildi áður auglýstar reglur Suðurnesjabæjar um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2018/2019, samkvæmt auglýsingu nr. 31 frá 23. janúar 2019, og áður auglýstar reglur Fjallabyggðar samkvæmt auglýsingu nr.141 frá 8. febrúar 2019.
Auglýsingin frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. febrúar 2019 (PDF)