Auglýsing um snjóflóða- og skipulagsmál í Fjallabyggð

- Tillaga að hættumati fyrir skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði -

- Tillaga að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði í Hóls- og Skarðsdal, Siglufirði -

Ásamt umhverfisskýrslu

___________

Tillaga að hættumati fyrir skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði auglýsist hér með skv. 5. gr. reglugerðar um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats nr. 505/2000.

___________

Tillaga að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði í Hóls- og Skarðsdal, Siglufirði, ásamt umhverfisskýrslu auglýsist hér með skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagssvæðið er u.þ.b. 773 ha að stærð og tekur yfir dalbotn Hólsdals og hliðardalinn Skarðsdal. Þar er skipulagt útivistarsvæði með skíðasvæði, golfvelli, skógrækt, knattspyrnusvæði, tjaldsvæði, frístundahúsum, þjónustureit o.fl. Forsendur skipulagsins er m.a. tillaga að snjóflóðahættumati fyrir svæðið sem er í kynningu.

_____________________________________________________________________

Tillaga að hættumati og deiliskipulagstillaga ásamt umhverfisskýrslu verða til sýnis á skrifstofum Fjallabyggðar að Gránugötu 24 á Siglufirði og Ólafsvegi 4 í Ólafsfirði frá og með föstudeginum 21. október  til og með föstudeginum 2. desember.

Gögnin verða einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins - www.fjallabyggd.is – (sjá tengla hér að neðan)

Skriflegar athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skipulags- og umhverfisnefnd eigi síðar en kl. 16.00 föstudaginn 2. desember.

Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunum.

 

Bæjarstjóri Fjallabyggðar

_____________________________________________________________________

Hér má sjá skjöld tengd tillögu að hættumati fyrir skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði

 

Hér má sjá skjöld tengd tillögu að deiliskipulagi fyrir útivistarsvæði í Hóls- og Skarðsdal, Siglufirði