Tillaga að deiliskipulagi fyrir Hornbrekkubót, verslunar- og þjónustusvæði, Ólafsfjarðarvatni

Tillaga að deiliskipulagi fyrir Hornbrekkubót, verslunar- og þjónustusvæði, Ólafsfjarðarvatni, auglýsist hér með skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagssvæðið er u.þ.b. 1,5 ha lands og afmarkast af Bylgjubyggð í norðri, Ólafsfjarðarvegi eystri í austri, raðhúsabyggð í vestri og Ólafsfjarðarvatni í suðri. Vegtenging er að svæðinu frá Bylgjubyggð.
Skipulagið gerir ráð fyrir 8 húsum, sem eru byggð nú þegar.
Húsin eru nýtt til útleigu og er aðgengi að Ólafsfjarðarvatni og opnu grænu svæði til sérstakra nota.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofum Fjallabyggðar að Gránugötu 24 á Siglufirði og Ólafsvegi 4 í Ólafsfirði frá og með föstudeginum 15. júlí til og með fimmtudeginum 25. ágúst 2011. Tillagan verður einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.fjallabyggd.is.
Skriflegar athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skipulags- og umhverfisnefnd eigi síðar en kl. 16.00 fimmtudaginn 25. ágúst 2011. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Bæjarstjóri Fjallabyggðar.

Skýringarmynd 1

 Skýringarmynd 2