Atvinna – Íþróttamiðstöð Ólafsfjarðar

Íþróttamiðstöð Ólafsfjarðar
Íþróttamiðstöð Ólafsfjarðar
Íþróttamiðstöð Ólafsfjarðar óskar eftir að ráða starfsmann í 100% starf. Um er að ræða tímabundna ráðningu frá 1. nóvember 2007 til 31. maí 2008 við sundlaugavörslu, baðvörslu (karla), hreingerningar og fleira. Unnið er á dag- kvöld- og helgarvöktum. Leitað er að starfsmönnum með góða þjónustulund sem eiga gott með að umgangast jafnt börn sem fullorðna.

Æskilegt að umsækjendur séu eldri en 20 ára.

Umsækjendur þurfa að standast hæfnispróf sundstaða og skila heilbrigðisvottorði.

Umsóknareyðublöð fást í Íþróttamiðstöð Ólafsfjarðar, bæjarskrifstofum Fjallabyggðar og hér á netinu og skal umsóknum skilað í Íþróttamiðstöð Ólasfjarðar fyrir 26. október 2007.

Laun skv. Kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 863-1466.