Atvinna - Íþróttamiðstöð Ólafsfjarðar

Íþróttamiðstöðin Ólafsfirði
Íþróttamiðstöðin Ólafsfirði
Íþróttamiðstöð Ólafsfjarðar óskar eftir starfsmanni í 70% starf. Um er að ræða fasta vinnu við sundlaugavörslu, baðvörslu, hreingerningar og fleira. Unnið er á dag- kvöld- og helgarvöktum. Athugið að þetta er annað starf en auglýst var fyrr í mánuðinum  

Leitað er að starfsmönnum með góða þjónustulund og sem eiga gott með að umgangast jafnt börn sem fullorðna. Æskilegt að umsækjendur séu eldri en 20 ára.
Umsækjendur þurfa að standast hæfnispróf sundstaða og skila heilbrigðisvottorði.
Umsóknareyðublöð fást í Íþróttamiöstöð Ólafsfjarðar og skal umsóknum skilað þangað fyrir 18. september 2007.
Laun skv. Kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 863-1466