Árni Helgason ehf. með lægsta tilboð í gerð sniðræsis

Í dag voru opnuð tilboð í gerð sniðræsis meðfram Snorragötu frá núverandi fráveituútrás við Síldarminjasafn að yfirfalls- og dælubrunni við efri enda Gránugötu. 

Alls bárust þrjú tilboð.
Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 15.394.000 kr.
 
Eftirtalin tilboð bárust:
 
Bás ehf.  17.751.000 kr.  115,3% af kostnaðaráætlun 
Árni Helgason ehf. 14.615.000 kr.  94,9% af kostnaðaráætlun 
Sölvi Sölvason 15.631.800 kr.  101,5% af kostnaðaráætlun 
Tilboðin verða tekin fyrir á næsta fundi bæjarráðs þann 15. apríl nk.