24.02.2004
Stjórn Atvinnuþróunarfélags Norðurlands vestra ákvað á fundi sínum 23. janúar 2004 að veita Háskólanum á Hólum hvatningarverðlaun ársins 2003. Félagið veitir verðlaunin árlega til fyrirtækja eða stofnana sem skarað hafa fram úr í starfsemi sinni. Verðlaunin eru nú veitt í fimmta sinn. Háskólinn á Hólum þykir sérlega vel að verðlaunum kominn og er þeim óskað áframhaldandi velgengni í uppbyggingu skólans. Afhending verðlaunanna fer fram á Hólum þann 27. febrúar kl. 11:30. Verðlaunagripurinn er listaverk eftir Erlend Magnússon listamann, ásamt verðlaunaskjali. Nánari upplýsingar gefur Baldur Valgeirsson framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Norðurlands vestra.
Lesa meira
18.02.2004
Nú liggja fyrir endanlegar tölur um íbúafjölda á Siglufirði þann 1. desember 2003. Árið 2003 bjuggu á Siglufirði 1438 íbúar og hefur þeim fækkað um 17 frá árinu áður.Frá árinu 2000 hefur íbúum fækkað um 122 og á 10 ára tímabili hefur íbúum fækkað um 343, en árið 1993 voru íbúar Siglufjarðar 1781.
Lesa meira
09.02.2004
Bæjarráð Ólafsfjarðar hefur samþykkt ályktun þar sem segir að í ljósi framkominna upplýsinga um minni þenslu í kjölfar stóriðjuframkvæmda á Austurlandi, óski bæjarráð Ólafsfjarðar eftir því að stjórnvöld endurskoði ákvörðun sína um tímasetingu framkvæmda við Héðinsfjarðargöng
Lesa meira
06.02.2004
Meirihluta bæjarstjórnar Siglufjarðar hefur samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að Runólfur Birgisson, framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtæksisins Siglfirðings ehf. verði ráðinn bæjarstjóri á Siglufirði. Gert er ráð fyrir að Runólfur taki við starfinu 4. mars nk.
Lesa meira