Áramótabrennum aflýst í ár

Tekin hefur verið ákvörðun, í samráði við viðeigandi aðila, um að engar áramótabrennur verði í Fjallabyggð í ár. Íbúar eru hvattir til að fylgjast með flugeldasýningum björgunarsveitanna á gamlárskvöld. Flugeldasýning Tinds í Ólafsfirði hefst kl. 20:30 og flugeldasýning Stráka Siglufirði hefst kl. 21:00.
Kæru íbúar, farið varlega og eigið gleðileg áramót, sinnið sóttvörnum og varist hópamyndanir.