Aprílgabb á vef Fjallabyggðar

Eins og marga eflaust grunar var frétt okkar um gullfundinn í Héðinsfjarðargöngum 1. aprílgabb. Aldrei hafa fleiri lesið eina einstaka frétt á www.fjallabyggd.is eins og fréttina um gullfundinn svo og fréttina um aukafund bæjarstjórnar vegna málsins. Dómurinn sem vísað er í fréttinni er hins vegar ekki neitt gabb svo ef við finnum gull eða gimsteina þarna inni verða dómstólar eflaust að svara hverjir fái að njóta.