Anna Hermína og jólagjafirnar

Nemendur grunnskólans ásamt Önnu Hermínu
Nemendur grunnskólans ásamt Önnu Hermínu
Nú í desember hefur Grunnskóli Fjallabyggðar verið í samstarfi við Önnu Hermínu Gunnarsdóttur, en hún hefur safnað jólagjöfum til að gefa bágstöddum börnum á Íslandi. 
Það hefur hún gert í 10 ár og leitaði nú eftir samstarfi við skólann þar sem gjafafjöldinn var kominn yfir 50 pakka. Nemendur í 1.- 7. bekk voru virkjaðir til þátttöku, gerðu merkispjöld og gjafapappír og tóku síðan að sér að pakka gjöfunum inn. 1.-4. bekkur útbjó falleg merkispjöld, 5. og 6. bekkur málaði gjafapappír og það var síðan á föstudaginn síðastliðinn sem Anna kom í skólahúsið við Tjarnarstíg með gjafirnar og nemendur 7. bekkjar pökkuðu þeim inn og merktu. Pakkarnir fara síðan til Fjölskylduhjálpar Íslands og Mæðrastyrksnefndar sem sjá um að koma þeim á rétta staði. Verkefnið var sérlega skemmtilegt og gefandi og ánægjulegt fyrir nemendur að fá að taka þátt í því.


Anna Hermína (lengst t.v.) ásamt nemendum í 7. bekk og Sillu kennara.