Alþýðuhúsið, sunnudagskaffi með skapandi fólki

Nú eru að hefja göngu sína viðburður í Alþýðuhúsinu á Siglufirði sem nefnist sunnudagskaffi með skapandi fólki. Fyrsta sunnudag í hverjum mánuði verður fólk frá ýmsum stöðum í samfélaginu með klukkutíma erindi. Öll eiga þau það sameiginlegt að vera skapandi í sínu starfi eða áhugamáli. Um er að ræða fyrirlestra, gjörninga, kynningar og spjall yfir kaffibolla.

Sigríður María Róbertsdóttir ríður á vaðið sunnudaginn 6. mars kl. 15:30 með kynningu á uppbyggingu Rauðku í ferðaþjónustu.

Frá árinu 2010 hefur Rauðka verið áberandi í uppbyggingu ferðaþjónustu í Fjallabyggð. Margar nýjungar hafa litið dagsins ljóss síðan þá með tilkomu Hannes Boy, Kaffi Rauðku, iðnaðareldhúss og nú síðast Sigló Hótels. Í dag starfa 25 manns hjá Rauðku/Sigló Hótel á heilsársgrunni. Frá árinu 2011 hefur Sigríður María gegnt stöðu framkvæmdastjóra Rauðku í viðamikilli uppbyggingu félagsins í ferðaþjónustu á Siglufirði.

Sigríður María Róbertsdóttir framkvæmdastjóri
Sigríður María Róbertsdóttir