Alþýðuhúsið á Siglufirði helgina 9. – 10. mars 2019
Laugardaginn 9. mars kl. 15.00 opnar Ólöf Helga Helgadóttir sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði sem ber yfirskriftina Maðurinn sem minnir á margt.
Sunnudaginn 10. mars kl. 14.30 mun Margrét Jónsdóttir Njarðvík vera með erindi á Sunnudagskaffi með skapandi fólki sem fjallar um ferð hennar frá því að vera dósent í háskóla í að stofna fyrirtæki.
Maðurinn sem minnir á margt
Er svo margt að minnast á, margar glaðar stundir. Mér er minnisstætt þegar ég var í grunnskóla og stóð fyrir framan íslenskukennarana og flutti erindi úr Í Hlíðarendakoti utanbókar. Mér er minnisstætt þegar ég var skiptinemi og stóð fyrir framan allan bekkinn og flutti Sonnettu eftir Shakespeare utanbókar. Mér er minnisstætt þegar ég festi tunguna við ljósastaur í nístings frosti, á meðan vinkona mín hló sturlaðist ég af hræðslu, reif tunguna frá og markaði blóðslóð í snjónum. Mér er minnisstætt þegar ég var í kapphlaupi við bróður minn niður tröppur af 5. hæð á hóteli á Benidorm, þegar ég sprengdi hljóðmúrinn og hljóp í gegnum glerhurð sem aðskildi lobbý og sundlaug. Mér er minnisstætt þegar ég sat á túninu heima, reytti nýsprottið grasið og lét hugann reika þegar ör með áfestum nagla sem frændi minn skaut með boga upp í loft beint fyrir ofan mig, stakkst á kaf milli vinstra auga og eyra og dinglaði á húðinni þar til ég öskraði. Ópið, Pac-Man, geimvera, 7 hnettir, Duftgráið við, Hrist ryk á steini, Á skákborði sturtunnar rignir kóngum og Flöt spæna, eru mér einnig minnisstæð.
Í verkum sínum ýtir Ólöf Helga hversdagslegu efni út fyrir sitt hefðbundna hlutverk og varpar þannig óvæntu ljósi á kunnugleg sjónarhorn. Efnið sem hún notar hefur auk þess oft sögulega merkingu sem er mjög persónuleg. Hún útskrifaðist með BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2005 og MFA-gráðu í myndlist frá Slade School of Fine Art í London árið 2010. Árið 2001 stundaði hún örnám við Kvikmyndaskóla Íslands. Hún býr og starfar á Siglufirði. Framundan eru sýningar í Verksmiðjunni á Hjalteyri í ágúst og á Sequences - real time art festival í október.
Sýningin er opin daglega kl. 14.00 – 17.00 til 23. mars.
Sunnudagskaffi með skapandi fólki.
Sunnudaginn 10. mars kl. 14.30 verður Margrét Jónsdóttir Njarðvík spænskufræðingur og ferðaskrifstofueigandi með erindi á Sunnudagskaffi í Alþýðuhúsinu á Siglufirði, sem fjallar um það að vera skapandi í eigin fyrirtækjarekstri. Í erindi sínu fjallar Margrét um ferðalag sitt frá því að vera dósent í háskóla yfir í að stofna fyrirtæki sem byggir á styrkleikum hennar, menntun og ástríðu. Allir eru hjartanlega velkomnir og boðið verður upp vínsmökkun frá Spáni og ólívuolíusmökkun!
Margrét Jónsdóttir Njarðvík PhD, MBA
MUNDO - ferðaskrifstofa og alþjóðleg ráðgjöf
MUNDO - international consulting and travel agency
tel: 354 6914646
Uppbyggingasjóður/menningarráð Eyþings, Fjallabyggð, Norðurorka og Aðalbakarí styðja við menningarstarf í Alþýðuhúsinu.