Alþjóðlegi snjódagurinn í Tindaöxl

Tindaöxl. Mynd: Gísli Kristinsson
Tindaöxl. Mynd: Gísli Kristinsson

Skíðafélag Ólafsfjarðar sem rekur skíðasvæðið í Tindaöxl tekur þátt í alþjóðlega snjódeginum á sunnudaginn. Frítt verður í fjallið fyrir alla og boðið upp á kakó frá kl 11:00
Haldið verður óhefðbundið mót í svigi ásamt samhliðarsvigi. Leikjabraut ofl, frá kl 11:30  
Göngudeild skíðafélagsins verður með "skí-cross" og hægt verður að skjóta í mark með örvum kl 14:00.

Allar nánari upplýsingar á facebókarsíðu félagsins.