Lestrarátakinu "Allir lesa" er nú formlega lokið og liggja úrslit fyrir. Þúsundir landsmanna tóku þátt í landsleik í
lestri:
- Á fjórum vikum skráðu 4.236 einstaklingar í 326 liðum lestur upp á um 70.000 klukkustundir.
- Heildarlesturinn samsvarar um átta árum af samfelldum lestri.
- Íslandsmeistarar í lestri lásu í yfir 5 sólarhringa að meðaltali á keppnistímanum.
- Tvö sigurlið koma úr Reykjanesbæ.
- Vestmannaeyingar lásu mest allra sveitarfélaga.
- Konur lásu þrisvar sinnum meira en karlar.
- Börn undir 15 ára lásu langmest.
Fyrir fjórum vikum hleyptu Miðstöð íslenskra bókmennta og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO af stokkunum landsleik í lestri á
nýjum lestrarvef, allirlesa.is – og er hann sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum.
Á degi íslenskrar tungu (16. nóvember), lauk landsleiknum, þar sem hópar af öllum stærðum og gerðum lásu til sigurs. Á
keppnistímanum hafa hrannast inn spennandi tölur um lestur þátttakenda í Allir lesa, og í
pdf skjalinu hér er það helsta tíundað.
Fjallabyggð varð í 40. sæti í flokki sveitarfélaga með meðallestur upp á 5,2 klst. Vestmannaeyingar lásu mest allra og var
meðallestur þeirra 21,8 klst.
Allar nánari upplýsingar um keppnina og niðurstöður má finna á heimasíðu landsleiksins,
www.allirlesa.is