Alice Liu Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2016

Mynd af gluggaverkefni Alice
Mynd af gluggaverkefni Alice

Á fundi markaðs- og menningarnefndar þann 14. janúar var farið yfir umsóknir eða tilnefningar fyrir Bæjarlistamann Fjallabyggðar árið 2016. Nokkrar tilnefningar bárust. Það var samdóma álit nefndarinnar að nafnbótina Bæjarlistamaður Fjallabyggðar fyrir árið 2016 kæmi í hlut Alice Liu.

Alice sem fædd er í Hong Kong hefur búið í Fjallabyggð frá árinu 2011.
Hún lærði málun og teikningu á sínum unglingsárum. Hún menntaði sig svo frekar í grafískum listum með áherslu á ljósmyndun og hreyfimyndagerð. Hún lauk diplómanámi í hreyfimyndagerð (computer animation) frá Hong Kong Art Centre árið 1999 og lauk svo BA-gráðu í skapandi miðlun frá Hong Kong City University árið 2004.

Á árunum 2005 - 2009 var hún framkvæmdastjóri fyrir Shanghai Steet Artspace sem er samfélag gallerýja í Hong Kong.

Árið 2009 giftist hún Sigurði Svavarssyni frá Ólafsfirði og flutti til Íslands árið 2010 og bjó eitt ár á Vestfjörðum áður en hún flutti til Ólafsfjarðar þar sem hún ásamt Sigurði sett á fót Listhúsið.

Alice hefur frá upphafi verið dugleg að miðla list sinni í Fjallabyggð með hreyfimyndum og ljósmyndum. Eitt af verkum hennar fjallaði um glugga þar sem hún sem aðfluttur listamaður horfir utanfrá á glugga heimila. Verkefnið sem unnið var á árinum 2011 - 2013 fjallaði um einmannaleika hennar í ókunnugu landi og hvernig hún þorði bara að skilja fólk í gegnum gluggana. Á árinu 2014 byrjaði hún á nýju verkefni þar sem hún myndar daglega skýjamyndir á himni.
Auk þess að starfa sem listamaður rekur Alice sjálseignarstofnunina Listhús ses þar sem markmiðið er að vinna að framgangi listar í Fjallabyggð.

Alice trúir á list sem ómissandi þátta í daglegu lífi að öðrum kosti verði lífið bara leiðinlegt.

Formleg útnefning bæjarlistamanns ásamt afhendingu menningarstyrkja fer fram í Menningarhúsinu Tjarnarborg fimmtudaginn 21. janúar nk. kl. 18:00.

Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2016, Alice Liu
Alice Liu, Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2016.