Aðventu- og jóladagskrá í Fjallabyggð

Á allra næstu dögum verður aðventu- og jóladagskrá dreift í hús í Fjallabyggð þar sem fram koma upplýsingar um helstu viðburði í bæjarfélaginu á komandi aðventu. Tilvalið er að varðveita  dagatalið og hengja það upp. Dagskráin er einnig aðgengileg hér fyrir neðan til lestrar eða útprentunar.

Auglýst var eftir viðburðum  í byrjun september sl. og rann frestur út þann 1. nóvember.  

Athugið að dagskráin er ekki tæmandi og birt með fyrirvara um breytingar en verður uppfærð jafn óðum og breytingar / ábendingar berast hér á heimasíðu Fjallabyggðar.

Ljóst er að það verður nóg um að vera í Fjallabyggð á komandi vikum. 

Allar ábendingar um viðburði eru ennþá vel þegnar til birtingar á heimsíðu Fjallabyggðar á netfangið lindalea@fjallabyggd.is

Aðventu- og jóladagatal til útprentunar