Það styttist í fyrsta í aðventu og sjálfa jólahátíðina á þessu ári 2014. Með Tunnunni, sem kemur út
í þessari viku, er nú dreift sérstakri aðventu- og jóladagskrá í Fjallabyggð.
Dagskráin nær frá 29. nóvember og til 6. janúar 2015 og inniheldur upplýsingar um flest það sem á sér stað í
Fjallabyggð á þessu tímabili. Auglýst var eftir viðburðum með tölvupóstum til ferðaþjónustuaðila og jafnframt á
heimasíðu Fjallabyggðar. Upplýsingar sem hér er að finna er það sem skilaði sér til markaðs- og menningarfulltrúa Fjallabyggðar
sem tók þessar upplýsingar saman. Þetta er örugglega ekki tæmandi listi og ef einhver hefur misst af því að koma viðburði á
framfæri er hægt að vekja athygli á honum hér á heimasíðunni eða á viðburðadagatali síðunnar.
Senda skal upplýsingar um viðburð á netfangið kristinn@fjallabyggd.is
Hægt er að nálgast dagskránna hér á pdf formi (404 KB) með því að smella
hér.
Vakin er athygli á því að fimmtudaginn 4. desember verður opið hús í Iðju til kl. 19:00 en ekki kl. 16:00 eins og misritaðist
í dagskránni.