400 ára gömul popplög og baðstofurapp

Þjóðlagasetrið hefur í sumar staðið fyrir nokkrum mjög velsóttum viðburðum og næsta fimmtudagskvöld, 10. ágúst kl. 20:30, verður haldin síðasta kvöldstund sumarsins.

Sérstakir gestir verða sópransöngkonan góðkunna Hallveig Rúnarsdóttir og hin fjölhæfa tónlistarkona Jennifer Bliss Bennett frá Englandi. Sungin verða 16. og 17. aldar dægurlög, leikið á barokk-fiðlu og hið hljómfagra endurreisnarhljóðfæri viola da gamba. Einnig mun Eyjólfur Eyjólfsson slá á langspil og félagar úr Kvæðamannafélaginu Rímukveða rímur og syngja tvísöngva.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!