17. júní í Fjallabyggð

80 ÁRA LÝÐVELDISAFMÆLI HÁTÍÐARDAGSKRÁ Í FJALLABYGGÐ

Fjölbreytt hátíðardagskrá verður í Fjallabyggð á þjóðhátíðardaginn 17. júní.

Í Ólafsfirði, við Menningarhúsið Tjarnarborg verður stórglæsileg hátíðardagskrá klukkan 13:00 og er það Unglingadeildin Smástrákar sem hefur veg og vanda að hátíðardagskránni í ár.

Dagskrá á Ólafsfirði

Kl. 9:00                Lýðveldisfánar dregnir að húni
Kl. 12:00-13:00    Knattspyrnuleikur - 7. og 8. flokkur KF á fótboltavellinum í Ólafsfirði. Iðkendur mæta við vallarhús kl. 11:45.
Kl. 13:00-17:00    Pálshús Ólafsfirði - Sýning úr Listaverkasafni Fjallabyggðar
Kl. 15:00-16:00   Pálshús Ólafsfirði - “Þjóðbúningur verður til” erindi Dr. Margrét Gunnarsdóttir sagnfræðingur 

HÁTÍÐARDAGSKRÁ VIÐ TJARNARBORG

Kl. 13:00-15:00  Setning hátíðar
                            Hátíðarávarp
                            Ávarp Fjallkonu; Margrét Jónsdóttir Njarðvík
                            Tónlist Guito Thomas og Edda Björk Jónsdóttir
                            Slökkvilið með eitthvað óvænt

Hoppukastalar
Sölubásar
Candíflos
Mínigolf- og Frisbígolf

Kl. 14:00-15:00 Tjarnarborg - Lýðveldiskaka og kaffi.
Hátíðargestum boðið upp á Lýðveldisköku í tilefni 80 ára lýðveldisafmælis Íslands 

 Stærsta vatnsrennibraut landsins opnuð

Dagskrá á Siglufirði

Kl. 9:00                Lýðveldisfánar dregnir að húni
Kl. 10:00-17:00    Síldarminjasafnið opið
Kl. 10:00-11:00    Rammalóðin 17. júní hlaup UMF Glóa.  Fyrir börn 6 - 11 ára

Kl. 11:00-11:30    Hátíðarathöfn við minnisvarða sr. Bjarna Þorsteinssonar við Siglufjarðarkirkju

Hátíðarávarp
Ómar Geir Lísuson, útskriftarnemi leggur blómsveig að minnisvarða sr. Bjarna
Tónlist Guito Thomas og Edda Björk Jónsdóttir

Kl. 11:00-17:00    Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar, Opið hús, heitt á könnunni
Kl. 13:00-17:00   Saga Fotografica Ljósmyndasögusafnið. Sýning Rutar Hallgrímsdóttur, RAX. og fleiri. Nýjar myndavélar og margt fleira áhugavert að skoða
Kl. 13:00-15:00   Ráðhússalurinn á Siglufirði, Bergþór Morthens, Mögulegur ómöguleiki, sýning
Kl. 14:00-17:00   Kompan, Alþýðuhúsinu á Siglufirði, Styrmir Örn Guðmundsson, sýnir. Opið í anddyri Alþýðuhússins, Lítil verk eftir Aðalheiði S. Eysteinsdóttur
Kl. 15:00-17:00   Söluturninn Aðalgötu Siglufirði. Örlygur Kristfinnsson opnar sýninguna Geirfuglar, vatnslitamyndir og leir-lágmyndir 

Forsætisráðuneytið hefur gefið út bókina Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær út í samvinnu við Forlagið, sem er gjöf til landsmanna og verður bókin aðgengileg íbúum Fjallabyggðar á Bókasöfnum í Fjallabyggð og á bæjarskrifstofu Ráðhúsi Fjallabyggðar. Íbúar eru hvattir til að sækja sér eintak af þessari einstaklega fallegu bók á næstu dögum.  Fjallkonan er þjóðartákn og í bókinni er kafað ofan í sögu fjallkonunnar, ávörpin sem flutt hafa verið af íslenskri fjallkonu allt frá árinu 1947 ásamt úrvali þjóðhátíðarljóða. Í bókinni eru þýðingar m.a. á ensku og pólsku.

Fjallabyggð sendir hamingjuóskir til íbúa og landsmanna allra í tilefni hátíðarinnar vonast til að dagskráin í Fjallabyggð höfði til sem flestra og stuðli að samveru og gleði á tímamótunum.

Dagskrá til útprentunar