Menningarnefnd Fjallabyggðar hefur ákveðið að halda skuli 17. júní hátíðarhöldin til skiptis í Ólafsfirði og
Siglufirði.
Nú í ár verður hátíðin í Ólafsfirði og er það fræðuslu- og menningamálanefnd Slökkviliðs
Ólafsfjarðar sem hefur tekið það verkefni að sér.
Haldið verður þó í þá hefð að leggja blómsveig á leiði Sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði,
þar sem kirkjukórinn mun syngja og Lára Stefánsdóttir skólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga mund halda ræða. Þessi
athöfn hefst KL: 11:00.
Rútur fara frá Ráðhústorginu á Siglufirði til Ólafsfjarðar klukkan 12:00 og 13:30.
Rútur fara svo með gesti frá Ólafsfirði til Siglufjarðar bæði klukkan 16:00 og 17:00.