17. júní - dagskrá

Í Fjallabyggð verður hátíðardagskrá í tilefni þjóðhátíðardags Íslendinga, 17. júní, sem hér segir:

Kl. 09:00 Fánar dregnir að húni.

Kl. 11:00 Athöfn við minnisvarða sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði. Nýstúdent leggur blómsveig á leiðið.
Ávarp: Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri.
Kirkjukór Siglufjarðar syngur.

Kl. 13:00 Knattspyrnuleikur; 7. og 8. flokkur KF, á sparkvellinum Ólafsfirði. Iðkendur mæta við vallarhús kl. 12:45.

Kl. 14:00 Hátíðin sett við Tjarnarborg:
- Hátíðarræða: Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri.
- Tónlistaratriði: Svava Jónsdóttir syngur
- Ávarp Fjallkonunnar
- Tónlistaratriði frá Tónskóla Fjallabyggðar.

Kl. 14:30 Leiktæki opin; hoppukastalar, geimsnerill, stauraklifur, vatnaboltar.

Kl. 16:00 Stærsta vatnsrennibraut landsins (skíðastökkpallurinn).

Kl. 15:00 Yfirlitssýning Kolbrúnar Símonardóttur opnar í Bláa húsinu á Rauðkutorgi. Sýningin verður opin til 6. júlí

Rútuferðir á milli staða verða sem hér segir:
Frá Ráðhústorginu Siglufirði: kl. 12:30 og 13:30
Frá íþróttamiðstöðinni Ólafsfirði: kl. 16:00 og 17:00

Það er Menningar- og fræðslunefnd Slökkviliðsins í Ólafsfirði sem heldur utan um dagskránna í Ólafsfirði.

Dagskrá 17. júní