12 sækja um starf yfirhafnarvarðar

Á fundi Hafnastjórnar Fjallabyggðar þann 7. apríl voru lagðar fram umsóknir um starf yfirhafnarvarðar sem var auglýst laust til umsóknar þann 5. mars sl. 12 einstaklingar sóttu um starfið og eru þeir eftirtaldir:
Ársól Von Ólafsdóttir - Siglufirði
Baldur Jörgen Daníelsson - Siglufirði
Halldór Bogi Sigurðsson - Siglufirði
Kjartan Smári Ólafsson - Siglufirði
Kristinn Kristjánsson - Siglufirði
Óðinn Gunnarsson - Siglufirði
Páll Heimir Pálsson - Akureyri
Ríkharður Hólm Sigurðsson - Ólafsfirði
Sigurgeir Haukur Ólafsson - Siglufirði
Skúli Gunnarsson - Garðabæ
Sverrir Mjófjörð Gunnarsson - Ólafsfirði
Þorbjörn Sigurðsson - Ólafsfirði

Hafnarstjórn lagði til að tekin yrðu viðtöl við þá umsækjendur sem koma frekast til greina í samræmi við auglýsingu að fengnu áliti ráðningarstofu og var hafnarstjóra falið að boða þá aðila til viðtals og leggja niðurstöður og tillögu fyrir hafnarstjórn.