100 ár frá snjóflóðum á Staðarhólsbökkum, í Héðinsfirði og Engidal

100 ár frá snjóflóðum á Staðarhólsbökkum, í Héðinsfirði og Engidal

Dagana 12. og 13. apríl nk. verða eitt hundrað ár liðin frá mannskæðustu snjóflóðum í Hvanneyrarhreppi. Síldarminjasafnið og Siglufjarðarkirkja minnast atburðanna með dagskrá:

Föstudagurinn 12. apríl 

17:00 Gengið að rústum Evanger
undir leiðsögn starfsmanna Síldarminjasafnsins. Sr. Sigurður Ægisson minnist þeirra sem fórust. Boðið upp á kaffi og kleinur.

Kl. 18:30 Héðinsfjörður og Engidalur 
Keyrt á einkabílum. Sr. Sigurður Ægisson minnist þeirra sem fórust.

Laugardagur 13. apríl

Kl. 11:00    Kyrrðarstund í Siglufjarðarkirkju til minningar um þau átján sem létust í snjóflóðunum. 

Auglýsing á pdf til útprentunar