Í Skálarhlíð er dagþjónusta aldraðra sem nýtist íbúum vel. Þar er boðið upp á morgunmat milli kl. 09:00 - 10:00, hádegismat kl. 12:00 og kaffi alla virka daga kl. 14:30.
Íbúar geta fengið heimilshjálp og heimahjúkrun.
Dagþjónustan er opin alla virka daga á milli kl. 09:00 - 15:00.
Íbúar geta fengið tengdan neyðarhnapp.
Í Skálarhlíð eru 29 íbúðir. 10 stórar íbúðir og 19 litlar. Stærri íbúðirnar eru um 58 fm. minni íbúðirnar eru um 20 fm. og 28 fm. Íbúðunum fylgja geymslur sem eru 6 - 8 fm. Einnig er ein íbúð sem er 43 fm.
Í húsinu er sameiginlegt þvotthús. Efnalaugin Lind er með mjög góða þjónustu fyrir þá sem vilja koma og sækja þvott 1 sinni í viku og koma með hreinan þvott 1 sinni í viku.
Dagvist aldraðra
Dagvist aldraðra er til húsa í Skálarhlíð. Það sem er í boði er eftirtalið;
Fönduraðstaða opin fyrir þá sem vilja nýta sér aðstöðuna klukkan 13:00 alla virka daga.
Markmið með starfinu er að:
- rjúfa félagslega einangrun og efla þátttöku daglegra athafna.
- bjóða upp á þjónustu sem auðveldar fólki að búa sem lengst heima.
- hafa notalegt umhverfi þannig að starfsfólk og gestir geti í sameiningu mótað starfsemina.
- hver dagur verði góður og ánægjulegur.
Fjöldi mynda hafa verið teknir af starfinu úr dagvistinni og má sjá þær allar með því að smella hér.
Sími forstöðumanns: 467-1147
Gsm: 898-1147