Verksamningur um ræstingu fyrir Grunnskóla Fjallabyggðar, starfsstöð Siglufirði 2025-2028

Málsnúmer 2501064

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 863. fundur - 18.02.2025

Á 861. fundi sínum samþykkti bæjarráð tillögu deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála um að tilboði óskráðs félags sem nú heitir Kúst & Fæjó ehf. í ræstingar fyrir Grunnskóla Fjallabyggðar, starfsstöð á Siglufirði, verði tekið og gerður verði þriggja ára samningur með möguleika á framlengingu til eins árs að hámarki tvisvar.
Með fundarboði bæjarráðs fylgdu drög að verksamningi við Kúst & Fæjó ehf., sem lagður er fram til staðfestingar.
Samþykkt
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við kynnt drög að samningi og felur bæjarstjóra að undirrita fyrir hönd sveitarfélagsins.