Umsókn til skipulagsfulltrúa - Frágangur lóðar við Hafnargötu 1

Málsnúmer 2407030

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 313. fundur - 14.08.2024

Lögð fram umsókn Raftækjavinnustofunnar ehf. dags. 10.7.2024 þar sem óskað er eftir leyfi til að steypa kant með léttri timburgirðingu ofan á meðfram lóðarmörkum að vestan í sömu hæð og útliti og garður við Vesturgötu 17. Einnig óskað eftir leyfi fyrir steyptri stétt austan við hús með skjólgirðingu í samráði við eigendur næstu lóða.
Samþykkt
Erindi samþykkt.