Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi - Suðurgata 24B

Málsnúmer 2406053

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 313. fundur - 14.08.2024

Lögð fram umsókn Ásbjörns Þórs Ásbjörnssonar Blöndal og Sólveigar Þorkelsdóttur dags. 25.6.2024 þar sem sótt er um endurnýjun lóðarleigusamnings við Suðurgötu 24b, en enginn samningur er í gildi fyrir lóðina. Einnig lögð fram drög að merkjalýsingu fyrir lóðina dags. 01.07.2024.
Samþykkt
Nefndin samþykkir endurnýjun lóðarleigusamnings ásamt merkjalýsingu.