Umsókn um stöðuleyfi fyrir geymsluskýli við Hvanneyrarbraut 24

Málsnúmer 2406041

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 312. fundur - 19.06.2024

Lögð fram umsókn um stöðuleyfi fyrir geymsluskýli við Hvanneyrarbraut 24 sem notað verður til geymslu á efni og vinnslu við endurnýjun hússins. Skýlið verður við vesturvegg hússins, 5,4 m á lengd og 2,3 m á breidd.
Samþykkt
Nefndin samþykkir stöðuleyfið sem verður veitt til 12 mánaða.