Stuðningur við starfsemi Eyjafjarðardeildar Rauða krossins í Fjallabyggð

Málsnúmer 2009017

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 666. fundur - 08.09.2020

Lagt fram erindi Ingibjargar E. Halldórsdóttur fh. Eyjafjarðardeildar Rauða Kross Íslands, dags. 03.09.2020 þar sem óskað er eftir styrk til greiðslu húsaleigu undir virknistarfsemi deildarinnar í Ólafsfirði kr. 660.000 á ári sem mundi renna til eiganda húsnæðisins, Slysavarnardeildar kvenna í Ólafsfirði.

Bæjarráð þakkar erindið og það mikilvæga starf sem Eyjafjarðardeild RKÍ heldur úti í Fjallabyggð en sér sér ekki fært að verða við beiðninni.