Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 124. fundur - 30. apríl 2020
Málsnúmer 2004009F
Vakta málsnúmer
-
Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 124
Deildarstjóri félagsmáladeildar lagði fram minnisblað um Covid-19 stöðuskýrslu félagsþjónustunnar. Í samræmi við boðaðar tilslakanir á samkomubanni og sóttvarnarráðstöfunum vegna COVID-19 sem taka gildi 4. maí nk., verður starfi félagsþjónustunnar smám saman komið í fyrra horf. Verður þetta gert af varfærni og með áherslu á verja þá sem eru í áhættuhópum gegn smiti, sem og starfsmenn sem sinna þjónustunni.
Bókun fundar
Afgreiðsla 124. fundar félagsmálanefndar staðfest á 185. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
-
Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 124
Lagt fram til kynningar.
Bókun fundar
Afgreiðsla 124. fundar félagsmálanefndar staðfest á 185. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
-
Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 124
Lagt fram erindi frá félags- og barnamálaráðherra og framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi, þar sem auglýst er eftir umsóknum áhugasamra sveitarfélaga til þátttöku í verkefninu Barnvæn sveitarfélög UNICEF. Verkefnið hefur til þessa verið innleitt í þremur sveitarfélögum en langir biðlistar hafa skapast. Með stuðningi félags- og barnamálaráðherra mun nú öllum sveitarfélögum á landinu standa til boða að gerast barnvæn sveitarfélög á næstu árum. Félagsmálanefnd hvetur bæjaryfirvöld til að sækja um þátttöku í verkefninu.
Bókun fundar
Afgreiðsla 124. fundar félagsmálanefndar staðfest á 185. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum