Mat á þörf og forgangsröðun biðlista eftir íbúð í Skálarhlíð

Málsnúmer 1902033

Vakta málsnúmer

Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 116. fundur - 07.02.2019

Deildarstjóri lagði fram matslista fyrir forgangsröðun biðlista eftir íbúð í Skálarhlíð. Matslistinn tekur á þáttum sem snúa að heilsufari, aldri, félagslegum aðstæðum og núverandi húsnæðisaðstæðum umsækjenda. Félagsmálanefnd samþykkir að matslistinn verði tekinn í notkun við forgangsröðun biðlista eftir íbúð í Skálarhlíð.