Lögð fram fundargerð deildarstjóra Fjallabyggðar frá 11.06.2014.
Meirihluti bæjarráðs telur rétt að taka nokkur mál til nánari skoðunar á milli funda og þar með til frekari umræðu og ákvarðanatöku á næsta fundi bæjarráðs.
Um er að ræða ábendingar um neðantalin verkefni:
1. Lokafrágang á og að gámasvæði á Siglufirði en áætlaður kostnaður er um 7,8 m.kr.
2. Sameining íbúða í Skálarhlíð, en áætlaður kostnaður er um 7,5 m.kr.
3. Kaup á lausri kennslustofu fyrir leikskóla og er áætlaður kostnaður um 8,5 m.kr.
4. Hönnun á stækkun leikskóla en áætlaður kostnaður er um 1,5 m.kr.
5. Meirihluti bæjarráðs óskar einnig eftir upplýsingum frá tæknideild um kostnað við lagfæringar á vegi að skíðaskálanum í Ólafsfirði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka upp viðræður við Samgöngustofu/umferðarsvið um neðantalin málefni fyrir næsta fund í bæjarráði.
1. Nauðsynlegar lagfæringar á þjóðveginum um Ásinn á Siglufirði.
2. Kostnaðarhlutdeild í mokstri á miklum sandburði inn í Ólafsfjarðarvatn en áætlaður kostnaður er orðinn um 5,5 m.kr.
3.Farið verði yfir lagfæringar og framkvæmdir við þjóðveg að og í gegnum Siglufjörð.
4. Farið verði yfir lagfæringar og framkvæmdir við þjóðveg að og í gegnum Ólafsfjörð.
5. Einnig er bæjarstjóra falið að taka upp viðræður um aðkomu að framkvæmdum við veg að skíðaskálanum Ólafsfirði.
6. Bæjarstjóra er falið að ræða einnig endurbætur á hafnarbryggju á Siglufirði og koma verkefninu á samgönguáætlun.
Bæjarstjóri upplýsti fundarmenn um að hann hafi fengið tvo fundi í vikunni með fulltrúum Samgöngustofu er varðar ofangreind málefni og eru þeir á miðvikudag og fimmtudag.
Bæjarstjóri upplýsti að hann hefur rætt við forstöðumann bókasafns bæjarfélagsins er varðar framkvæmdir við Ólafsveg 4.
Á þeim fundi kom fram hugmynd um aðgerðaráætlun sem miðar að opnun á þjónustu við íbúa strax í haust.
Bæjarráð felur deildarstjóra tæknideildar að kanna kostnað við að opna bókasafn á neðrihæð hússins í lok sumars. Þjónusta við íbúa í Ólafsfirði verði þar með tryggð er varðar bókasafnið og almenna þjónustu. Forstöðumanni bókasafnsins er falið að miða búnaðaðarkaup fyrir umrædda þjónustu.
Bæjarráð telur þar með rétt að fresta fyrirhuguðu útboði á viðbyggingu við Ólafsveg 4 þar til frekari upplýsingar liggja fyrir.
Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra tæknideildar að kanna fyrir næsta fund áætlaðan kostnað við umrædda hugmynd og framkvæmd.
Í ljósi ofanritaðs þ.e. funda með Samgöngustofu og úttektar tæknideildar á Ólafsvegi 4 mun bæjarráð taka til afgreiðslu ofanritaðar framkvæmdir og framkomnar ábendingar á næsta fundi bæjarráðs.