Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 8. fundur - 18. mars 2014
Málsnúmer 1403001F
Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 8. fundur - 18. mars 2014
Undir þessum lið sat, Olga Gísladóttir, leikskólastjóri. Olga gerði grein fyrir skýrslu um þróun skólanámskrár Leikskóla Fjallabyggðar. Leikskólinn fékk úthlutuðum styrk úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2012-2013 til að sinna þessu verkefni. Markmið verkefnisins er þróun skólanámskrár með hliðsjón af nýrri menntastefnu og því sem snýr að grunnþáttum menntunar og námssviðum leikskólans samkvæmt nýrri aðalnámskrá. Áhersluatriði er að auka gæði skólastarfsins, stuðla að umbótum og stefnumótun um þær leiðir sem leikskólinn hyggst vinna eftir.
Bókun fundar
Afgreiðsla 8. fundar fræðslu- og frístundanefndar staðfest á 99. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 8. fundur - 18. mars 2014
Undir þessum lið sátu Guðný Helgadóttir, formaður Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar, Sigurður Gunnarsson, gjaldkeri UÍF og María Elín Sigurbjörnsdóttir meðstjórnandi UÍF. UÍF sækir um styrk til Fjallabyggðar til að mæta kostnaði við endurbætur á tengigangi við Hól. Fyrir liggur greinargerð ásamt kostnaðaráætlun fyrir verkið. Guðný gerði nefndinni grein fyrir að tengigangurinn er svo gott sem ónýtur og hefur UÍF ekki bolmagn til að ráðast í nauðsynlegt viðhald án stuðnings bæjarfélagsins.
Eftir bruna sem varð s.l. haust á húsakynnum Hóls er ljóst að ekki verður komist hjá að ráðast í verulegar endurbætur á tengiganginum.
Tryggingabætur hrökkva ekki til að mæta áætluðum kostnaði.
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að bæjaryfirvöld styðji við endurbæturnar og felur deildarstjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa að koma málinu á framfæri við bæjarráð.
Bókun fundar

Til máls tóku Guðrún Árnadóttir, Ingvar Erlingsson og Ólafur H. Marteinsson.
Tillaga forseta um að vísa styrkbeiðni til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015 var samþykkt með 6 atkvæðum.
Sólrún Júlísdóttir, Guðmundur Gauti Sveinsson og Guðrún Árnadóttir sátu hjá.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 8. fundur - 18. mars 2014
Deildarstjóri lagði fram tillögu að endurnýjuðum samningi við Skíðafélag Ólafsfjarðar um rekstur skíðasvæðisins í Ólafsfirði. Samningurinn er til tveggja ára en uppsegjanlegur af beggja hálfu fyrir 15. september ár hvert.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur deildarstjóra að ganga frá málinu í samráði við Skíðafélag Ólafsfjarðar.
Sólrún Júlíusdóttir lagði fram eftirfarandi bókun undir þessum lið fundargerðarinnar:
,,Ég legg áherslu á að styrkir og samningsgreiðslur til félagasamtaka séu ekki dregnar og verði greiddar á réttum tíma. Mikilvægt er fyrir félagasamtök að fá tekjurnar á réttum tíma svo hægt sé að standa skil á útgjöldum."
Bókun Sólrúnar samþykkt samhljóða.
Bókun fundar

Til máls tóku Guðrún Árnadóttir, Ingvar Erlingsson, Sigurður Hlöðvesson og Ólafur H. Marteinsson.
Tillaga um að vísa þessum dagskrárlið til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði var samþykkt með 9. atkvæðum.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 8. fundur - 18. mars 2014
Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar eiga gjaldskrár sveitarfélagsins ekki að hækka að svo stöddu.
Gjaldskrá Íþróttamiðstöðar Fjallabyggðar fyrir árið 2014 er eftirfarandi:
Sund fullorðnir:
Stakt gjald 600
10 miða kort 4.500
30 miða kort 10.000
Árskort 16.000
Hjónakort 27.000
Sund börn 10 - 15 ára
Stakt gjald 300
10 miða kort 2.000
30 miða kort 3.500
Árskort 4.000
67 ára og eldri og öryrkjar borga barnagjald í sund:
Sundföt 600
Handklæði 600
Sturta 600
Tækjasalur: Skóli,-60 ára og eldri og öryrkjar
Stakt gjald 1.200 1.000
1.mán kort 7.000 6.000
3.mán. kort 16.000 13.000
6.mán. kort. 25.000 20.000
Árskort 37.000 25.000
Hjónakort 60.000
20 stk. klippikort 16.000
Eldri borgarar (60+) og öryrkjar borga sama gjald og nemendur í Fjallabyggð í ræktina.
Íþróttasalur:
1/1 salur 6.000
½ salur 3.500
Tennis 3.500
Blakvöllur 2.800
Badmintonvöllur 1.800
Bókun fundar

Til máls tók Guðrún Árnadóttir.
Afgreiðsla 8. fundar fræðslu- og frístundanefndar staðfest á 99. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 8. fundur - 18. mars 2014
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir að meðan á verkfalli framhaldsskólakennara stendur verði nemendum Menntaskólans á Tröllaskaga boðið frítt í sund í Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar. Verða nemendur að framvísa skólaskírteini til að fá frítt í sund. Eru nemendur hvattir til að taka daginn snemma og mæta í morgunsundið.
Bókun fundar
Afgreiðsla 8. fundar fræðslu- og frístundanefndar staðfest á 99. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.