Bæjarráð Fjallabyggðar - 314. fundur - 10. október 2013
Málsnúmer 1310002F
Vakta málsnúmer
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 314. fundur - 10. október 2013
Lagt fram málaflokkayfirlit ársins með útkomuspá ársins.
Farið yfir áætlaðar tekjur ársins 2014 vegna útsvars, jöfnunarsjóðs og lóðarleigu.
Farið yfir áætlaðar fasteignaskattstekjur.
Farið yfir stöðugildabreytingar frá síðustu áramótum til 30. september 2013.
Aukafundir verða haldnir í bæjarráði á næstu vikum vegna fjárhagsáætlunargerðar.
Bókun fundar
Afgreiðsla 314. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 314. fundur - 10. október 2013
Lagt fram til kynningar launayfirlit fyrir janúar til september 2013.
Niðurstaðan fyrir heildina er 634 m.kr. sem er um 95,3% af áætlun tímabilsins sem var 665 m.kr.
Þó eru deildir sem eru yfir áætlun tímabilsins samtals um 9 m.kr. á móti öðrum deildum sem eru undir áætlun, samtals um 40 m.kr.
Bókun fundar
Afgreiðsla 314. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
-
Bæjarráð Fjallabyggðar - 314. fundur - 10. október 2013
Rekstraryfirlit fyrstu átta mánuðina lagt fram til kynningar.
Rekstrarniðurstaða er 31 milljón betri en tímabilsáætlun gerir ráð fyrir. Tekjur eru 10 milljónum hærri, gjöld 20 millj. lægri og fjárm.liðir 1 millj. lægri.
Bókun fundar
Afgreiðsla 314. fundar bæjarráðs staðfest á 94. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
Bæjarstjóri, Sigurður Valur Ásbjarnarson gerði grein fyrir fundargerð.