Menningarnefnd Fjallabyggðar - 51. fundur - 22. febrúar 2012
Málsnúmer 1202004F
Vakta málsnúmer
.1
1012045
Framtíðarfyrirkomulag Tjarnarborgar
Menningarnefnd Fjallabyggðar - 51. fundur - 22. febrúar 2012
Menningarnefnd leggur til að Tjarnarborg verði gert að menningarhúsi enda töluverð breyting að eiga sér stað á nýtingu hússins. Það beri því nafnið Menningarhúsið Tjarnarborg framvegis. Auglýst verði sem fyrst eftir forstöðumanni og ræstingaraðila sem taki til starfa eigi síðar en 1. júní nk.
Einnig leggur nefndin til við bæjarstjórn að starfsmenn Menningarhússins Tjarnarborgar heyri undir fræðslu- og menningarfulltrúa.
Bókun fundar
<DIV><DIV><DIV>76. fundur bæjarstjórnar samþykkti með með 9 atkvæðum að fresta afgreiðslu þessa liðar.</DIV></DIV></DIV>
.2
1202033
Ungmennaráð Fjallabyggðar tekur til starfa
Menningarnefnd Fjallabyggðar - 51. fundur - 22. febrúar 2012
Hvatt er til þess að menningarnefnd hafi í huga að málefni ungs fólks er varða menningu sé vísað til ungmennaráðs til umfjöllunar.
Bókun fundar
Afgreiðsla 51. fundar menningarnefndar staðfest á 76. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
.3
1202034
Viðgerð listaverka í eigu Fjallabyggðar - fyrsti áfangi
Menningarnefnd Fjallabyggðar - 51. fundur - 22. febrúar 2012
Haft var samband við Ólaf Inga Jónsson deildarstjóra forvörsludeildar Listasafns Íslands vegna viðgerða á listaverkum í eigu Fjallabyggðar en 900 þúsund eru á fjárhagsáætlun þessa árs til viðgerða. Nefndin óskar eftir upplýsingum um hversu mörg verk verða lagfærð á árinu
Bókun fundar
Afgreiðsla 51. fundar menningarnefndar staðfest á 76. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
.4
1202038
Bréf til íbúa Fjallabyggðar vegna póstkorta 2012
Menningarnefnd Fjallabyggðar - 51. fundur - 22. febrúar 2012
Bókun fundar
Afgreiðsla 51. fundar menningarnefndar staðfest á 76. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
Formaður menningarnefndar, Bjarkey Gunnarsdóttir gerði grein fyrir fundargerð.