17 - Grímubrekkur

Vegalengd: 13-14 km
Leið: Kálfárdalur -  Grímubrekkur - Grímudalur - Upsadalur - Dalvík.
Mesta hæð: 930 m.
Göngutími: 6-8 klst.

Þegar lagt er á Grímubrekkur er haldið upp frá bænum Kálfsá og gengið fram Kálfsárdal og komið niður í Grímudal sem er upp af Upsadal vestan Dalvíkur.

Leiðin yfir Grímubrekkur er mjög skemmtileg gönguleið, greiðfær þó að á nokkrum stöðum sé nokkuð bratt. Sem áður segir er gengið upp frá Kálfsá. Kálfsárdalur er lítið dalverpi sem gengur til suðurs og afmarkast hann af Nítuhnjúk, 955 m. og Lágafjalli að norðan og Hólshyrnu, 853 m. (líka nefnd Kálfsárhyrna), að sunnan. Á milli Nítuhnjúks og Lágafells er skál er nefnist Egilsskál en líka nefnd Kálfsárskál. Hólshyrna er eitt fegursta fjall í Ólafsfirði, hefur reglulega lögun, rís hátt og bratt upp af bæjunum Kálfsá, Kálfsárkoti og Hóli og setur mikinn svip á sveitina.

Fyrsti spölurinn upp frá Kálfsá er greiðfær og auðvelt er að rata þessa leið í björtu veðri, en eins og á öðrum leiðum í Ólafsfirði getur þar verið villugjarnt ef þoka hamlar sýn. Símalína var lögð um Grímubrekkur 1908 og sér enn fyrir vegarslóðum sem myndast höfðu er vinnuflokkar önnuðust viðgerðir á línunni. Línan er nú aflögð því með tilkomu Múlavegar var lagður sími þar. Enn sjást þó staurabrot sem minna á þessa lögn.

Gengið er upp með ánni að sunnan. Nokkrir fossar eru í henni og heitir sá fyrsti Stórifoss og þar upp af Litlifoss. Þegar komið er upp í dalsmynnið heitir Kálfsárháls, en hann nær frá Hólshyrnu (Kálfsárhyrnu) norður að ánni. Áður nefndur Kálfsárdalur ber raunar tvö nöfn, hann er nefndur Norðurdalur norðan árinnar en Suðurdalur sunnan hennar. Nokkurt graslendi er í dalnum og þá aðallega á afmörkuðum stöðum. Rétt framan við Kálfsárháls er Ystanef, nokkuð stórt grasigróið nef sem skagar út í ána, þar framan við er Fremstanef og milli þeirra Laugarhvammur en þar eru volgar uppsprettur. Syðst í Hólshyrnu eru grasigrónir hjallar er nefnast Grænuhjallar. Framarlega í dalnum tekur við stór háls er nær þvert yfir dalinn og nefnist hann Hávaði.

Er komið er upp á Hávaðann blasir skarðið við. Framundan er lítið vatn, Kálfsárdalsvatn, þar sem Kálfsá á upptök sín en í dalbotninum er lítill jökull. Á vinstri hönd er Bræðraleið en á hægri hönd Þröskuldur. Þegar farin er Bræðraleið er komið niður í Karlsárdal norðan við Dalvík, en ef farinn er Þröskuldur er farið niður að Hóli í Ólafsfirði og völdu menn þessa leið þegar komið var frá Dalvík ef fara átti fram í fjörðinn.

Er við göngum í átt að Grímubrekkum er á vinstri hönd gríðarstór skriða sem fallið hefur fram í dalinn og eru steinarnir í henni margir hverjir mörg tonn. Halda skal fram fyrir þessa skriðu og taka stefnu upp í skarðið. Bratt er síðasta spölinn. Staurabrot eru í skarðinu. Á hægri hönd er Einstakafjall, 1006 m. en sunnan við það er Reykjaheiði. Úr skarðinu sér út á Eyjafjörð í átt til Hríseyjar. Hægt er að ganga eftir eggjum í átt að Dröngum og er það skemmtileg gönguleið og er þá komið niður í Burstabrekkudal. Leiðin til Dalvíkur er greiðfær, að vísu er nokkuð bratt niður úr skarðinu en fljótlega komið í grónar hlíðar. 

Distance: 13-14 km
Route: Kálfárdalur - Grímubrekkur - Grímudalur - Upsadalur - Dalvík.
Maximum elevation: 930 m.
Hiking time: 6-8 hours.

When hiking Grímubrekkur, we start from the farm Kálfsá and walk along Kálfsárdal and to Grímudal, which is up from Upsadal to the west of Dalvíkur.

The route over Grímubrekkur is a very pleasant hiking trail, accessible although in some places it is quite steep. Kálfsárdalur is a small valley that runs to the south and is bordered by Nítuhnjúk, 955 m. and Lágafjall to the north and Hólshyrna, 853 m. (also called Kálfsárhyrna), to the south. Between Nítuhnjúk and Lágafell there is a basin called Egilsskál but also called Kálfsárskál. Hólshyrna is one of the most beautiful mountains in Ólafsfjörður, has a regular shape, rises high and steeply from the towns of Kálfsá, Kálfsárkoti and Hóli and makes a big impression on the countryside.

The first trail up from Kálfsá is smooth and easy to navigate in clear weather, but as with other routes in Ólafsfjörður, it can be tricky if fog obstructs vision. A telephone line was laid around Grímubrekkur in 1908 and still covers the road sections that were created when work crews repaired the line. The line is now abandoned because with the introduction of Múlavegar, a telephone was installed there. You can still see broken poles that remind you of these pipes.

You go up along the river to the south. There are several waterfalls in it and the first one is called Stórifoss and up there is Litlifoss. When you get to the mouth of the valley, it is called Kálfsárháls, but it extends from Hólshyrna (Kálfsárhyrna) north to the river. The previously mentioned Kálfsárdalur actually has two names, it is called Norðurdalur north of the river and Suðurdalur south of it. There is some grassland in the valley, and then mostly in limited places. Right in front of Kálfsárháls is Ystanef, a rather large grassy promontory that juts out into the river, in front of that is Fremstanef and between them Laugarhvammur, but there are warm springs. In the south of Hólshyrna there are grassy hills called Grænuhjar. At the front of the valley, a large ridge almost crosses the valley and is called Háváði.

When you get to the top of Hávaðann, you will see the pass. Ahead is a small lake, Kálfsárdalsvatn, where Kálfsá originates, but in the valley floor is a small glacier. On the left is Brædraleið and on the right Thräskuld. When you go Bræðraleið you come down to Karlsárdal north of Dalvík, but if you go Thräskuldur you go down to Hóli in Ólafsfjörður and people chose this route when they came from Dalvík if they wanted to go to the fjord.

As we walk towards Grímubrekkrum, on the left, there is a huge landslide that has fallen into the valley, and there are many stones in it, each weighing several tons. Continue ahead of this pass and head up the pass. The last step is steep. There are broken poles in the pass. On the right is Einstakafjall, 1006 m. but south of it is Reykjaheiði. The pass looks out over Eyjafjörður towards Hríseyjar. You can walk along the eggs towards Drangi and it is a fun trail and then you come down to Burstabrekkudal. The road to Dalvík is smooth, although it is quite steep down from the pass, but you soon reach green slopes.