Fréttir

Breyttur opnunartími sýsluskrifstofunnar í Ólafsfirði

Frá og með 1. september 2009 verður skrifstofan í Ólafsfirði opin frá kl. 9:00 til kl. 13:00 alla daga, en þó til kl. 15.:00 á þriðjudögum, en þá er sýslumaður til viðtals, að forfallalausu.
Lesa meira

Framhaldsnám í Fjallabyggð veturinn 2009-2010

Búið er að ráða Bergþór Morthens framhaldsskólakennara til að vera umsjónarkennari framhaldsdeildarinnar á Siglufirði. Námsverið verður í húsi Einingar-Iðju, Eyrargötu 24b.
Lesa meira

Byggðakvóti Fjallabyggðar

Byggðakvóti til fiskiskipa Fjallabyggðar hefur verið auglýstur til úthlutunar.  
Lesa meira

Varúð – aukin umferð í Ólafsfirði

Byrjað er að keyra efni í snjóflóðavarnargarðana við Hornbrekku. Efnið er flutt á vörubílum frá göngum eftir Aðalgötu og Ægisgötu og upp að Hornbrekku. Reikna má með um 20 – 40 ferðum fram og til baka yfir hvern klukkutíma.
Lesa meira

Norðurþjóðaverkefnið

Þann 1. júní sl. fór formlega af stað stórt og fjölþjóðlegt verkefni á vegum Þjóðlagasetursins hér á Siglufirði og Fjallabyggðar, styrkt af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins og Norrænu menningargáttinni.
Lesa meira

Myndlistarsýning á Siglufirði, 1. - 3. ágúst.

Laugardaginn 1. ágúst næstkomandi kl 13:00 verður myndlistasýningin Lífsmörk - Útmörk opnuð í Sýningarsal Ráðhúss Siglufjarðar. Alls sjö listamenn taka þátt í sýningunni.
Lesa meira

Swingdans- og tónlistarhátíð í Tjarnarborg Ólafsfirði

Alþjóðleg  Swingdans- og tónlistarhátíð verður í Tjarnarborg  Ólafsfirði. Vakin verður upp millistríðsárastemning og spilað verður alvöru gullaldar swing jazz á borð við Ellu Fitzgerald, Louise Armstrong, Duke Ellington, Count Basie, Benny Goodman o.s.frv. Swingdanshátíðin á Íslandi á sér eingöngu stað í Reykjavík og í Ólafsfirði
Lesa meira

Félagsráðgjafi óskast

Félagsráðgjafi óskast til starfa við félagsþjónustu Fjallabyggðar   Helstu verkefni félagsþjónustu Fjallabyggðar eru; félagsleg ráðgjöf, barnavernd, þjónusta við aldraða, forvarnarmál, auk þess sem málefni fatlaðra heyrir undir félagsþjónustu sveitarfélagsins.  Unnið er með öðrum fagstéttum í þverfaglegum teymum og áhersla lögð á samvinnu og sjálfstæð vinnubrögð.
Lesa meira

Ný nafngift - Ríplabás

Bæjarráð hefur samþykkt að fara að uppástungu Svandísar Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, um nafn á samkomusvæði snjóflóðagarðanna ofan Hafnarrípils. Samkomusvæðið mun því framvegis bera nafnið "Ríplabás".
Lesa meira

Snjóflóðavarnargörðum og tjörnum gefin nöfn

Þann 7. júlí sl. voru snjóflóðavarnagarðarnir fyrir ofan Siglufjörð vígðir með viðhöfn að viðstöddu fjölmenni. Við þetta tækifæri voru görðunum gefin nöfn sem dómnefnd valdi úr hópi níu tillagna sem bárust í nafnasamkeppni. Tillögurnar sem urðu fyrir valinu komu frá Örnefnafélaginu Snóki.
Lesa meira