Aðalfundur Málræktarsjóðs verður haldinn föstudaginn 4. júní kl. 15.30 í fundarsalnum F&G á Hilton Reykjavik Nordica (Hótel Loftleiðum). Samkvæmt skipulagsskrá eiga samtök, fyrirtæki og stofnanir, sem lögðu sjóðnum til fé fyrir árslok 1992, rétt á að tilnefna einn mann í fulltrúaráðið. Fjallabyggð hefur þennan rétt en tilnefndi ekki fulltrúa á síðasta aðalfund. Tilnefningar fyrir næsta aðalfund þurfa að berast framkvæmdastjóra sjóðsins í tölvupósti, kari@hi.is, eigi síðar en 21. maí nk. ásamt netfangi þess sem tilnefndur er.
Staðfest