Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 71
Málsnúmer 2011018F
Vakta málsnúmer
-
Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 71. fundur - 2. desember 2020
Markaðs- og menningarnefnd fór yfir tilnefningar til bæjarlistamanns Fjallabyggðar 2021 en frestur til að skila tilnefningum rann út 28. október sl.. Alls bárust tólf tilnefningar og þakkar nefndin íbúum fyrir þær. Útnefning fer fram á nýju ári. Markaðs- og menningarnefnd útnefnir Jón Þorsteinsson söngvara bæjarlistamann Fjallabyggðar 2021.
Bókun fundar
Afgreiðsla 71. fundar markaðs- og menningarnefndar staðfest á 195. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
Bæjarstjórn óskar Jóni Þorsteinssyni innilega til hamingju með útnefninguna sem bæjarlistarmaður Fjallabyggðar 2021.
-
Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 71. fundur - 2. desember 2020
Umsóknir um menningarstyrki fyrir árið 2021 lagðar fram til kynningar. Markaðs- og menningarnefnd tekur afstöðu til og úthlutar menningarstyrkjum á fundi sínum í janúar.
Bókun fundar
Afgreiðsla 71. fundar markaðs- og menningarnefndar staðfest á 195. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum
-
Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 71. fundur - 2. desember 2020
Skipulag funda markaðs- og menningarnefndar á árinu 2021 lagt fram til kynningar. Nefndin samþykkir það með áorðnum breytingum.
Bókun fundar
Afgreiðsla 71. fundar markaðs- og menningarnefndar staðfest á 195. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum